Þórhalla snerti hjörtu margra
Þórhalla var kennari bæði í grunn- og framhaldsskóla, hóf störf við Verzlunarskóla Íslands árið 2007 og var einnig í pólitíkinni: „Hún snerti hjörtu marga og því ætlum við að hlaupa (eða labba) saman í hennar nafni í maraþoninu í ár. Ég hvet eindregið alla þá sem hana þekktu að vera með,“ segir Milla í tilkynningu á Facebook. Þar bendir hún einnig á að hægt er að heita á sjóðinn án þess að hlaupa.
Sjálf labbaði Þórhalla tíu kílómetra árið 2019 til styrktar sjóðsins, þá í miðri lyfjameðferð með fólkið sitt sér við hlið.
Styðja við sjóðinn í hennar minningu
Milla segir þau hjónin hafa hlaupið til styrktar sjóðsins síðustu ár: „Þetta höfum við gert fyrir Þórhöllu, bestu vinkonu mömmu, sem missti Örvar litla bróður sinn í hræðilegu slysi þegar hann reyndi að bjarga lífi nemanda síns.
Sjóðurinn aðstoðar fjölskyldur við að koma látnum ástvinum heim til Íslands. Okkur langar að halda áfram að styðja við þennan mikilvæga sjóð í hennar minningu.“
Stofnaði sjóðinn eftir slys Örvars
„Þórhalla stofnar þennan sjóð eftir að hún upplifir það hversu kostnaðarsamt og flókið það var að koma Örvari litla bróður sínum til landsins eftir að hann lést í hræðilegu slysi í Bandaríkjunum. Sjóðurinn aðstoðar að meðaltali fjórar til fimm fjölskyldur á ári þannig það er mikilvægt að halda honum gangandi,“ segir Milla um sjóðinn í samtali við Vísi.
„Þórhalla var rosalega kröftug að safna í sjóðinn, bæði með áheitum í Reykjavíkurmaraþoninu en líka með stóru golfmóti í Öndverðarnesi á hverju sumri. Það hefði því glatt hana óendanlega að sjá stórt hlaupalið samankomið í minningu þeirra beggja!“ Segir hún að lokum.
Þeir sem vilja leggja sjóðnum lið geta einnig lagt inn á reikning:
Reikningur: 526-14-403800
Kennitala: 660614-0360
Netfang: minningarsjoduroa@gmail.com