Ísland endaði því í 8. sæti á HM eftir að hafa tapað síðustu þremur leikjum sínum á mótinu. Þrátt fyrir það er þetta besti árangur íslensks kvennalandsliðs á HM frá upphafi og frammistaða þess í Norður-Makedóníu var til mikillar fyrirmyndar. Tvo lykilmenn vantaði hjá Íslandi í dag, þær Elísu Elíasdóttur og Tinnu Sigurrósu Traustadóttur.
Íslendingar leiddu nánast allan tímann í leiknum í dag og voru meðal annars fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16-12. Ísland komst svo sex mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiks, 19-13.
Þá seig á ógæfuhliðina. Egyptar skoruðu níu mörk gegn þremur og jöfnuðu í 22-22. Íslendingar svöruðu með 4-1 kafla og komust þremur mörkum yfir, 26-23, en Egyptar jöfnuðu aftur.
Egyptaland náði forystunni, 29-30, en Elín Klara Þorkelsdóttir jafnaði í 30-30. Egyptar töpuðu svo boltanum þegar hálf mínúta var eftir og Embla Steindórsdóttir kom Íslendingum yfir, 30-31. En egypska liðið tók hraða miðju og jafnaði, 31-31, þegar sjö sekúndur voru eftir. Úrslitin réðust því í vítakeppni.
Egyptaland skoraði úr fjórum tilraunum sínum en Ísland aðeins tveimur. Lilja Ágústsdóttir og Embla skoruðu en Elínu Klöru og Katrínu Önnu Ásmundsdóttur brást bogalistin. Lokatölur eftir vítakeppni því, 33-35.
Mörk Íslands: Lilja Ágústsdóttir 12/3, Elín Klara Þorkelsdóttir 8, Embla Steindórsdóttir 5/1, Inga Dís Jóhannsdóttir 4, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2, Thelma Melsteð Björgvinsdóttir 2.