FedEx-mótið er frábrugðið öðrum mótum á PGA-mótaröðinni er þar er notast við umspilskerfi. Kylfingar vinna sér inn stig á meðan tímabilinu á PGA-mótaröðinni stendur og stigafjöldinn ræður því hvort þeir komist á FedEx-mótin sem eru þrjú talsins.
Fyrsta mótið er um helgina, FedEx St. Jude-meistaramótið, þar sem 125 efstu kylfingarnir í stigagjöfinni taka þátt.
Þrír kylfingar sem skiptu yfir á LIV-mótaröðina, Ástralinn Matt Jones og Bandaríkjamennirnir Talor Gooch og Hudson Swafford, kröfðust þess fyrir rétti í Bandaríkjunum að spila á mótinu. Allir hafa þeir verið í banni frá PGA-mótaröðinni eftir skipti sín, líkt og aðrir kylfingar sem gengu til liðs við LIV-mótaröðina.
Þeir höfðu unnið sér inn keppnisrétt á mótinu um helgina og sögðu bannið valda sér „óbætanlegan skaða“.
Dómarinn í málinu dæmdi hins vegar gegn kylfingunum, og með PGA-mótaröðinni. Hann sagði ábatann frá himinháum greiðslum LIV-mótaraðarinnar hafa legið fyrir, sem og bannið frá PGA, og byggi á reikningi leikmanna sem hafi vitað hvað þeir væru að gefa eftir með því að skipta yfir á LIV-mótaröðina.
Í tilkynningu frá LIV Golf greindu samtökin frá vonbrigðum sínum með dóminn þar sem sagði enn fremur: „Enginn græðir á því að banna kylfinga frá því að spila“.
Lögsókn þremenningana er aðskilin frá þeirri sem ellefu LIV-kylfingar, þar á meðal Phil Mickelson og Ian Poulter, hafa beint að PGA. Þar er reynt við lögmæti bannsins, en í tilfelli máls vikunnar reyndu kylfingarnir að fá banninu tímabundið lyft til að þeir gætu spilað um helgina.
FedEx St. Jude-meistaramótið hefst á fimmtudagskvöldið og verður í beinni á Stöð 2 Golf frá klukkan 19:00 þann daginn. Allir fjórir mótsdagar verða í beinni á Stöð 2 Golf.
Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.