Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Peningastefnunefnd segir þar að verðbólguhorfur hafi áfram versnað. Þannig hafi verðbólga aukist í júlí og mælst 9,9 prósent. Gert sé ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok ársins í tæplega 11 prósent.
Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi. Kynningin verður í höndum Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra, Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu, og Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabankans.
Hagvöxtur meiri en spáð var í maí
Í tilkynningunni segir að samkvæmt uppfærðri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt sé í ágústhefti Peningamála séu horfur á tæplega 6 prósenta hagvexti í ár sem sé 1,3 prósentum meiri vöxtur en spáð hafi verið í maí.
„Stafar það einkum af þróttmeiri einkaneyslu og hraðari bata í ferðaþjónustu. Störfum heldur áfram að fjölga og atvinnuleysi að minnka og meiri spenna hefur myndast í þjóðarbúinu en áætlað var í maí.
Verðbólguhorfur hafa áfram versnað. Verðbólga jókst í júlí og mældist 9,9%. Gert er ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok ársins í tæplega 11%. Verri verðbólguhorfur endurspegla kröftugri umsvif í þjóðarbúskapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrálátari hækkanir á húsnæðismarkaði auk meiri alþjóðlegrar verðbólgu. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað enn frekar á flesta mælikvarða.
Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“
Vextir verða því sem hér segir:
- Daglán 7,25%
- Lán gegn veði til 7 daga 6,25%
- Innlán bundin í 7 daga 5,50%
- Viðskiptareikningar 5,25%
Næsta ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt 5. október næstkomandi.