„Það er komin mikil spenna og tilhlökkun í hópinn að mæta á Laugardalsvöll og reyna að gera vel. Það er langt síðan við höfum fengið að taka þátt í þessum leik og það gerir þetta extra sætt,“ segir Elísa, en Valur er að taka þátt í bikarúrslitum í fyrsta skipti síðan 2012. Spennan er því mikil.
„Ef ég svara fyrir sjálfa mig, þá er þetta það. Ég hef aldrei fengið að stíga fæti á Laugardalsvöll með mínu félagsliði og það gerir þetta extra spennandi. Ég er mjög spennt fyrir laugardeginum og að fá að taka þátt í þessu,“
En er pressan þá einnig mikil á Valsliði, sem hefur verið eitt fremsta lið landsins síðustu ár, þegar biðin eftir bikartitli er orðin ellefu ár?
„Ekki spurning. Fyrir Val sem klúbb er loksins komið að þessu. Hinar greinarnar í klúbbnum, eins og handboltinn, hafa verið að gera vel í bikarkeppnum undanfarið og nú er komið að okkur,“
Gætum ekki verið á betri stað
Valskonur, líkt og Blikar, voru í Evrópuverkefni í síðustu viku. Valskonur fóru hins vegar áfram, annað en Blikar, og koma því fullar sjálfstrausts til leiks.
„Við komum bara vel undan Evrópuverkefninu, flestir leikmenn eru heilir, og það skiptir mestu máli að hafa breiðan og góðan hóp þegar álagið er mikið. Ég tel að við höfum náð að gera vel þar að halda öllum heilum og koma í veg fyrir meiðsli,“
„Þetta voru tveir sigurleikir sem komu okkur í næstu umferð og við gætum ekki verið á betri stað.“
Elísa býst þá við svipuðum leik og þegar þessi lið hafa mæst undanfarin misseri.
„Eins og oftast þegar þessi lið mætast þá eru þetta yfirleitt skemmtilegir leikir, opnir í báða enda, og ég býst í raun við svipuðum leik og undanfarið. Vonandi munum við bera sigur úr býtum,“ segir Elísa.
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan.