Í hádeginu í dag stendur UEFA fyrir drætti í umspilið um sæti á HM kvenna í fótbolta. Stelpurnar okkar eru eins og allir vita í pottinum, og vegna góðrar stigasöfnunar í undankeppninni fara þær beint á seinna stig umspilsins.
Á bæði fyrra og seinna stigi umspilsins eru bara spilaðir stakir leikir, og dregið um það hvaða lið fá að spila á heimavelli.
Já, það er sem sagt bara peningakast sem ræður því hvaða lið spila á heimavelli. Ekki árangur. Ekki staða á heimslista. Ekkert annað en heppni.
Og hvort ætli sé betra fyrir Ísland að spila á Laugardalsvelli eða í Brussel, ef liðið mætir til dæmis Belgum eins og á EM í sumar?
Ákvörðun sem snarminnkar vonina um eina skiptið á HM
Það er auðvitað bara ósanngjarnt, ógeðslega ósanngjarnt, að láta svona stórt atriði velta á heppni.
Ef fólki finnst það ekki má hugsa til eldri leikmanna í íslenska landsliðinu. Dagný Brynjarsdóttir, búin að þjóna landsliðinu í tólf ár, sagði við mig í síðustu viku að þetta gæti verið hennar síðasti séns á að komast á HM. Er í lagi að sá séns snarminnki út af einhverri geðþóttaákvörðun þeirra sem ráða hjá UEFA? Ætti Dagný ekki frekar að hagnast á því að hafa hamast í níutíu mínútur í hverjum einasta leik sem hún spilar, og vera þannig nær því að fylgja Hollandi á HM?
Sama staða Íslands og fyrir EM karla
Þessi sama staða var uppi fyrir EM karla sem fram fór í fyrrasumar. Íslenska karlalandsliðið fór í umspil og vegna fyrri árangurs síns fékk liðið heimaleik í undanúrslitum þess, gegn Rúmeníu, en dregið var um það hvort úrslitaleikur umspilsins yrði í Laugardal eða í Búdapest.
Búdapest varð niðurstaðan og Ísland að lokum svipt heilu stórmóti í fótbolta með sárgrætilegu tapi.
Auðvitað ætti að láta lið mætast í tveggja leikja einvígi þegar heilt stórmót er undir. Ef það er bara ekki hægt þá finnst mér það fyrst og fremst fráleitt að UEFA skuli ekki nýta tækifærið í svona máli til að láta stöðu á styrkleikalistum ráða. Það gerir vægi allra leikja meira og hjálpar til við að eyða tali um að mögulega skipti úrslit einhverra landsleikja ekki máli. Ef staða á styrkleikalista getur hjálpað landsliðum þá skipta úrslit allra landsleikja máli.
Vonandi verða stelpurnar okkar heppnar í dag og fá heimaleik, og vonandi verður íslenska þjóðin með á nótunum og skapar geggjaða stemningu á Laugardalsvelli eins og maður fékk að sjá hjá Hollendingum í Utrecht á þriðjudaginn. Bláa hafið kann þetta allt saman og getur svo sannarlega gert gæfumuninn.