Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði suðvestan fimm til tíu metrar á sekúndu á morgun, en tíu til fimmtán norðvestantil á landinu. Þurrt og bjart veður, en skýjað með köflum vestanlands.
Gengur í hvassa suðvestanátt með rigningu á laugardag, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austfjörðum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag (haustjafndægur): Suðvestan 5-15 m/s, hvassast norðvestantil. Víða bjartviðri, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti 6 til 13 stig.
Á laugardag: Gengur í suðvestan 15-23 með rigningu, sums staðar talsverð úrkoma, en þurrt austanlands fram á kvöld. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast fyrir austan.
Á sunnudag: Snýst í norðan og norðvestan 10-18 með dálítilli slyddu, en styttir upp á Suður- og Vesturlandi. Kólnandi, hiti 2 til 8 stig eftir hádegi. Mun hægari vindur vestanlands síðdegis en hvessir þá austantil.
Á mánudag: Norðvestanátt og víða léttskýjað, hiti 3 til 8 stig yfir daginn.
Á þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt og dálítil væta með köflum. Hiti 5 til 10 stig.