Danmörk gerði sér lítið fyrir og vann Frakkland 2-0 í riðli 1 í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld. Það dugði ekki til sigurs í riðlinum þar sem Króatía lagði Austurríki 3-1 og er því komið í undanúrslit.
Danmörk mætti Frakklandi á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld og vissi að sigur gæti komið liðinu í úrslit ef Króatía myndi misstíga sig. Danir léku frábærlega í kvöld og gerðu í raun út um leikinn með tveimur mörkum með stuttu millibili eftir rúmlega hálftíma leik.
Kasper Dolberg skoraði á 34. mínútu og fimm mínútum síðar tvöfaldaði Andreas Skov Olsen forystuna. Staðan 2-0 í hálfleik og reyndust það lokatölur leiksins. Því miður fyrir Dani þá vann Króatía 3-1 sigur í Austurríki þökk sé mörkum frá Luka Modrić, Marko Livaja og Dejan Lovren.
Danska landsliðið frábært LIÐ. C.Eriksen betri en nokkru sinni um þessar mundir
— Freyr Alexandersson (@freyrale) September 25, 2022
Frakkland koma haltrandi til leiks á HM.
Króatía vinnur riðilinn með 13 stig og kemst þar með í undanúrslit Þjóðadeildarinnar. Danmörk endar í 2. sæti með 12 stig og hefur lokið keppni að sinni. Austurríki féll svo niður í B-deild.