Petrea var kjörin stjórnarformaður Sýnar á nýafstöðum hluthafafundi sem haldinn var í lok ágúst. Hún hefur setið í stjórn Sýnar frá árinu 2020.
Skömmu eftir hluthafafundinn í ágúst fóru hluthafar sem höfðu að baki sér rúmlega tíu prósent hlutafjár félagsins fram á nýjan hluthafafund og nýtt stjórnarkjör. Sá fundur verður haldinn 20. október 2022.
Í tilkynningu til fjölmiðla sem Petrea sendi í kvöld kemur fram að hún hafi ákveðið að draga framboð sitt til stjórnar til baka.
„Maki minn, Benedikt K. Magnússon, gegnir starfi framkvæmdastjóra fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Í lok liðinnar viku setti forstjóri OR honum afarkosti vegna starfs síns, haldi ég áfram í stjórn.
Það er mat OR að seta mín í stjórn Sýnar hafi í för með sér að eiginmaður minn geti ekki sinnt starfi sínu sem skyldi, vegna mögulegrar ásýndar hagsmunaárekstra, sem myndi því leiða af sér brottvikningu hans úr starfi. Þess vegna hef ég ákveðið að draga framboð mitt til baka,“ segir í yfirlýsingu Petreu.
Þetta segist hún gera þrátt fyrir fyrirliggjandi lögfræðiálit um að ekki sé um hagsmunaárekstra að ræða. Þá hafi bæði félög gætt þess að beita fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir slíka árekstra.
„Frá því Benedikt réð sig til starfa, fyrr á þessu ári, hef ég ekki haft neinn aðgang að þeim upplýsingum eða málum sem varða Ljósleiðarann og Sýn. Vandað hefur verið til verka hvað það varðar og þegar málefni Ljósleiðarans koma upp hef ég vikið af öllum stjórnarfundum“, segir í yfirlýsingu Petreu.
Segist hún einnig hafa óskað eftir fundi með formanni og varaformanni stjórnar OR til að fara yfir „þá þröngu stöðu“ sem hún hafi verið sett í, nokkrum dögum fyrir hluthafafund.
„Það eru mér mikil vonbrigði að OR hafi ekki séð aðra kosti í stöðunni og ekki gefið færi á samtali í þeirri von að leita lausna.“
Uppfært klukkan 21.10: Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann svarar yfirlýsingu Petreu. Þar segir hann að það gangi ekki að framkvæmdastjóra fjármála OR sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum vegna fjölskyldutengsla. Nánar má lesa um yfirlýsingu Bjarna hér.
Vísir er í eigu Sýnar.