„Við höfum æft mjög vel og það er góður andi í hópnum. Mér finnst þetta allt vera að smella saman núna,“ sagði Andrea í viðtali við Val Pál Eiríksson eftir æfingu landsliðsins í vikunni. Andrea leikur með danska liðinu Álaborg sem er í efsta sæti næst efstu deidar þar í landi.
Íslenska liðið lék tvo leiki gegn Færeyjum um síðustu helgi og hefur nýtt vikuna vel í æfingar.
„Þessi ferð um helgina var ótrúlega góð fyrir hópinn, mikið hópefli og góður hópur. Við þurftum aðeins að fínpússa upphlaupin hjá okkur og vörnina og við höfum gert það núna í vikunni. Það er búið að ganga rosa vel og ég held þetta verði gott núna um helgina,“ bætti Andrea við og sagði að verkefnið gegn Ísrael um helgina legðist vel í sig.
„Þær eru reyndar eiginlega bara með nýtt lið, við vitum ekki hvaða leikmenn koma með. Þetta er andstæðingur sem við megum ekki vanmeta en við komum inn fullar af sjálfstrausti og ætlum okkur góða hluti.“
„Þær eru með flottar íþróttakonur í þessu liði. Það eru tveir nýir leikmenn frá Úkraínu sem við erum ekki með nein myndbönd af. Við erum bara með gamla leiki af þeim þannig að við þurfum að vera undirbúnar fyrir allt.“
Allt viðtalið við Andreu má sjá hér fyrir neðan þar sem hún ræðir meðal annars vistaskipti sín í sumar þar sem hún færði sig um set frá Kristianstad í Svíþjóð til Álaborgar.