Eftir langa bið mun Idol loksins hefja göngu sína á föstudaginn. Mikil eftirvænting er fyrir fyrsta þætti, enda hefur keppnin ekki verið haldin hér á landi í þrettán ár. Dómnefndin er ekki af verri endanum en hana skipar Daníel Ágúst ásamt Birgittu Haukdal, Bríeti og Herra Hnetusmjör.
Daníel Ágúst var gestur Ómars Úlfs á X977 þar sem hann fór yfir dómarahlutverkið og hvað það er sem keppendur þurfa að hafa til þess að fá „já“ frá honum.

Góð framkoma er galdur sem ekki allir eru jafn góðir í
„Fólk þarf að sjálfsögðu að geta sungið. Það að koma fram er náttúrlega einhvers konar galdur, sumir eru góðir í því og aðrir eru ekki eins góðir. En það er alltaf þetta extra sem maður er að leita að, að maður heillist að flutningnum, það sé einhver sál í þessu og það sé einhver meining og eitthvað á bak við þetta.“
Daníel segist ekki vera meðvirkur dómari. Hann er þó meðvitaður um það að fyrirtaks söngvarar geti átt slæman dag eða látið stressið yfirtaka sig í sjálfum prufunum. Hann segist því leyfa keppendum að njóta vafans upp að vissu marki og treystir innsæinu þegar kemur að því að gefa keppendum tækifæri.
„Ef það er eitthvað sem við teljum að fólk eigi inni þá viljum við að sjálfsögðu fá að komast að því og láta fólk skína.“
Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Daníel Ágúst í heild sinni.

Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fer í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember.