Í hugleiðingum veðurfræðings segir að frost verði víða á bilinu núll til fimm stig.
„Bætir síðan í vind á morgun, víða norðan strekkingur þegar kemur fram á daginn.
Í dag og á morgun má búast við bjartviðri sunnan heiða. Norðan- og austanlands er útlit fyrir dálítil él og bætir í élin á þeim slóðum aðfaranótt föstudags og þau verða efnismeiri fram eftir föstudeginum.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag: Norðan 8-15 m/s og él norðan- og austanlands, en bjart með köflum sunnan heiða. Frost víða 0 til 5 stig.
Á laugardag: Norðaustan 5-13 og él norðaustan- og austanlands, en léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en lítilsháttar él austast á landinu. Frost 0 til 8 stig, mest í innsveitum.
Á mánudag og þriðjudag: Norðaustan- og austanátt með bjartviðri, en él á austanverðu landinu og með norðurströndinni. Frost víða 0 til 5 stig.