Í söluyfirliti á fasteignavef Vísis segir að um sé að ræða tvö hús undir gisti- og veitingarekstur auk stórrar lóðar þar sem jafnframt sé hægt að vera með tjaldsvæði.
Þar segir að Stóru-Laugar séu í fallegu umhverfi Reykjadals sem sé skemmtilega staðsettur á milli margra helstu ferðamannastöðum Norðurlands. Aðeins sextíu kílómetrar séu til Akureyrar, fjörutíu til Húsavíkur og um þrjátíu til Mývatns.
Þá séu Laugar séu í göngufæri þar sem finna megi sundlaug, framhaldsskóla og verslun, svo eitthvað sé nefnt.
Átján herbergi, heitur pottur og veislusalur
Að Stóru-Laugum eru tvö ferðaþjónustuhús, annars vegar steypt hús, sem byggt var árið 1949, á tveimur hæðum auk riss. Húsið var gert upp og því breytt í gistiheimili árið 2006. Í húsinu er tíu herbergi, öll með baðherbergi. Sjö herbergi á hæðunum eru sögð mjög rúmgóð en þrjú herbergi í risinu eru sögð minni en skemmtileg og undir súð. Sunnan við húsið er stór pallur og rúmgóður steyptur heitur pottur.

Hitt húsið var byggt árið 2013 og er skráð 436,5 fermetrar að stærð. Neðri hæðin er steypt og skiptist í móttöku, veitingasal, setustofu, eldhús, salerni, starfsmannaaðstöðu og geymslur.
Efri hæðin er samsett úr timbureiningum og skiptist í átta herbergi sem öll eru með baðherbergjum og sérinngangi. Stór timburverönd er við suðurhlið hússins en einnig er timbuverönd þar sem gengið er inn í herbergin á austur- og norðurhlið hússins.

Húsin eru á 21.404 fermetra eignarlóð. Nyrst á lóðinni eru salerni sem notuð voru fyrir tjaldsvæði sem þar var rekið um tíma og þar eru jafnframt rafmagnstenglar fyrir ferðahýsi.
Seljendur vilja helst selja félagið sem heldur utan um reksturinn og á fasteignirnar og við sölu fylgja með allir rekstrarmunir sem og bókanir.