Handkastið fylgist vel með gangi mála á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Arnar Daði Arnarsson fær þar líka alltaf til sín góða gesti.
Strákarnir í Boltinn lýgur ekki og Smassbræðrum, Gunnar Birgisson, Sigurður Orri Kristjánsson og Tómas Steindórsson kíktu í fuglabúrið til Sérfræðingsins og fóru yfir sigur Strákanna okkar gegn Suður-Kóreu. Gunnar Birgisson fór líka yfir stöðuna í öðrum riðlum.
Í þættinum var farið yfir þá leikmenn sem hafa verið bestir í íslenska liðinu hingað til á mótinu og þá leikmenn sem hafa valdið mestu vonbrigðum.
„Eigum við að byrja á þeim góðu. Ég verð að setja Björgvin Pál Gústavsson í þriðja sætið. Hann hefur komið mér á óvart og fyrir það fyrsta að hann spili. Hann hefur tekið sína sénsa og var frábær í fyrstu tveimur leikjunum,“ sagði Gunnar Birgisson.
„Það sem maður sér afgerandi á milli Björgvins og Viktors (Gísla Hallgrímssonar) er að Bjöggi er eins og nýju fótboltamarkverðirnir. Þeir þurfa að vera góðir í fótunum og Bjöggi er frábær að grýta honum fram. Viktor gerði minna að því í þessum Suður-Kóreu leik áðan,“ sagði Tómas Steindórsson.
„Bjöggi er náttúrulega einn sá besti í heiminum í dag að kasta fram,“ skaut Arnar Daði inn í.
„Tvö: Elliði, er það ekki sanngjarnt? Ég bjóst ekki við neinu af línumönnunum á þessu móti og hann hefur nú þegar farið fram úr þeim væntingum og alveg rúmlega það. Hann hefur verið að spila vel í Þýskalandi þannig að það er alveg eðlilegt að hann komi með smá svægi inn í þetta mót,“ sagði Gunnar.
„Númer eitt er náttúrulega bara Bjarki Már Elísson sem er búinn að vera okkar langbesti leikmaður á þessu máti,“ sagði Gunnar.
Það má heyra allt spjall strákanna hér fyrir neðan og þar á meðal þeir leikmenn sem hafa ollið smassbræðum mestum vonbrigðum.