Sara er listakona og leikstjóri sem hefur á síðustu árum einbeitt sér að gerð teiknimynda, tónlistarmyndbanda og öðrum kvikmynda- og sjónvarpstengdum verkefnum. Hún kom meðal annars að gerð HBO heimildarþáttanna The Case Against Adnan Syed sem hlutu Emmy tilnefningu.
Sara er fædd og uppalin í Reykjavík og er með BFA-gráðu frá Listaháskóla Íslands. Hún leikstýrði teiknuðu stuttmyndinni My Year of Dicks sem kom út á síðasta ári. Myndin fjallar um Pam sem þráir það eitt að missa meydóminn og leitar ákaft að „hinum eina sanna“.
Myndin hlýtur tilnefningu til Óskarsverðlauna í flokknum Besta teiknaða stuttmyndin. Sara gæti því fetað í fótspor Hildar Guðnadóttur og orðið annar Íslendingurinn til þess að vinna Óskarsverðlaun.
Hér að neðan má sjá stuttmyndina My Year of Dicks.