Benedikt gerir eina breytingu á liðinu sem hann valdi í nóvember. Haukakonan Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir kemur inn fyrir Dagnýju Lísu Davíðsdóttur en Dagný er meidd.
Það vakti athygli að miðherjinn öflugi úr Keflavík, Birna Valgerður Benónýsdóttir, er ekki í hópnum en Birna er að skora 16,0 stig í leik fyrir topplið Subway deildar kvenna. Tinna Guðrún Alexandersdóttir úr Haukum er eini íslenski leikmaður deildarinnar sem að skora meira að meðaltali í leik í vetur.
Í tilkynningu KKÍ kemur fram að Birna sé ekki frá vegna meiðsla eins og í verkefninu í nóvember en þær sem ekki gátu tekið þátt að þessu sinni vegna meiðsla eru þær Dagný Lísa, Hallveig Jónsdóttir úr Val og Helena Sverrisdóttir úr Haukum.
Uppfært: Þó að það hafi ekki komið fram í tilkynningu KKÍ í dag þá gaf Birna Valgerður ekki kost á sér í landsliðið. Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari, staðfesti við Vísi, að leikmaðurinn hafi ekki gefið kost á sér í þetta verkefni.
Leikið verður nú í febrúar heima og að heiman og þar með klárast þessi undankeppni. Mótherjar Íslands í riðlinum eru Spánn, Ungverjaland og Rúmenía.
Ísland hefur leikið gegn Rúmeníu tvisvar og Ungverjalandi hér heima í nóvember 2022 fyrir rúmu ári síðan. Ísland náði í einn sigur, í leiknum í nóvember síðastliðnum á heimavelli gegn Rúmeníu og hafði að auki innbyrðis sigur eftir tvo leiki.
Leikir febrúar verða gegn Ungverjalandi og Spáni. Fyrst verður leikið á útivelli gegn Ungverjalandi þann 9. febrúar í Miskolc, og svo hér heima gegn Spáni í seinni leiknum. Heimaleikurinn fer fram í Laugardalshöll sunnudaginn 12. febrúar klukkan 19:45.
Íslenska liðið mun ferðast út mánudaginn 6. febrúar og vera við æfingar ytra fram að leik.
- Íslenska liðið er þannig skipað:
- Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (4 landsleikir)
- Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (8)
- Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (14)
- Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan (4)
- Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (6)
- Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir · Haukar (2)
- Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (4)
- Hildur Björg Kjartansdóttir · Valur (38)
- Isabella Ósk Sigurðardóttir · Njarðvík (10)
- Sara Rún Hinriksdóttir · Faenza Basket Project, Ítalíu (28)
- Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar (2)
- Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (27)
-
- Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
- Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson.
- Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir · Atlas Endurhæfing
- Læknir: Unnur Tara Jónsdóttir
- Fararstjórn: Kristinn Geir Pálsson, Sigrún Ragnarsdóttir og Hannes S. Jónsson.