Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá. Samkvæmt heimildum miðilsins eru félög í deildinni opin fyrir því að banna auglýsingar veðmálafyrirtækja framan á treyjum liða.
Veðmálaauglýsingar eru víða bannaðar og borið hefur á hertu regluverki um auglýsingar á starfseminni innan íþrótta síðustu misseri.
Í síðasta mánuði var slíkt bann gegn veðmálaauglýsingum íþróttafélaga samþykkt í Belgíu. Þar verða fyrirtækin bönnuð sem aðalstyrktaraðili fyrst um sinn, en í skrefum verði auglýsingar veðmálafyrirtækja bönnuð með öllu fyrir lok árs 2025.
Frumvarpið í Bretlandi, sem var langt komið í forsætisráðherratíð Boris Johnson, mun hins vegar aðeins snerta á auglýsingum framan á treyjum, samkvæmt frétt BBC. Veðmálafyrirtæki geti áfram auglýst á öðrum vettvöngum félaga, sem og á ermi treyjunnar.
Átta lið af tuttugu með veðmálafyrirtæki framan á treyjunni
Meginrökin fyrir slíkum bönnum er skaðsemi sem veðmál geta haft í för með sér, það er að segja veðmálafíkn. Stuðningsmenn frumvarpsins segja veðmálastarfsemi vera normalíseraðan þátt íþrótta. Aðgerða og stífara regluverks sé þörf til að verja viðkvæma hópa.

Átta félög af 20 í ensku úrvalsdeildinni (Bournemouth, Brentford, Everton, Fulham, Leeds, Newcastle, Southampton og West Ham) eru með veðmálafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila framan á treyjum sínum.
Sú tala hefur verið hærri á síðustu árum en slík fyrirtæki sáust ekki framan á treyjum liða fyrir aldamót og hafa þau á skömmum tíma raunar tekið yfir sem lang algengasti styrktaraðili enskra úrvalsdeildarliða. Mörg liðanna sem ekki eru með veðmálafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila á yfirstandandi leiktíð, hafa gert það áður.
„Raunveruleikinn er sá að fyrir lið utan þeirra sex stóru, bjóða þessi fyrirtæki tvöfalt meira fjárhagslega en fyrirtæki utan veðmálageirans,“ sagði Christian Purslow, framkvæmdastjóri Aston Villa, í síðasta mánuði eftir að félagið samdi við veðmálafyrirtækið BK8.
Flestir veðji á ábyrgan hátt
Neðri deildir á Englandi eru með Sky Bet sem sinn aðalstyrktaraðila. EFL, sem rekur B, C og D-deild landsins (sem bera heiti Sky Bet) segir að félög í þeim deildum muni verða af 40 milljónum punda árlega ef veðmálaauglýsingar verða bannaðar alfarið.
Veðmálaráð Bretlands, sem er málsvari veðmálageirans í ríkinu, er andstætt hertu regluverki og segir meirihluta þeirra 22 milljóna Breta sem veðji að staðaldri „geri það á öruggan og ábyrgan hátt.“
„Hlutfall veðmálavanda er enn lágt miðað við alþjóðlegan mælikvarða, 0,3% fullorðinna í Bretlandi - og fór niður úr 0,4% árið áður,“ segir í tilkynningu ráðsins.
Almenningur verði að gangandi auglýsingaskiltum

Iain Duncan Smith, fyrrum formaður Íhaldsflokksins, sem í dag fer fyrir hreyfingu þingmanna sem berst fyrir hertara regluverki, segir bresk lög vera á meðal þeirra frjálslegustu í heiminum þegar kemur að veðmálastarfsemi.
„Í augnablikinu erum við líklega landið með frjálsustu fjárhættuspilalög í heimi,“ segir Duncan Smith. Veðmálaauglýsingar þurfi að fjarlægja af treyjum til að „stöðva þúsundir manna sem ráfa um sem gangandi auglýsingaskilti.“