Enn er lokað inn á snjóflóðasvæðin en Fjarðarheiðin opnaði í morgun og Kristján Már Unnarsson fréttamaður okkar er á Seyðisfirði. Við heyrum í honum í tímanum.
Einnig ræðum við umdeild lög dómsmálaráðherra um héraðsdómstólana sem ráðherra mælir fyrir síðar í dag. Þingflokkur Framsóknarflokksins gerir til dæmis fyrirvara við stjórnarfumvarpið.
Þá segjum við frá björgun tveggja fjallgöngumanna í Fagrafelli í nótt þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð til að ná mönnunum niður, en annar þeirra var slasaður og hinn í sjálfheldu.
Að auki heyrum við í vonsviknum ferðamálafrömuðum eftir að þýska flugfélagið Condor tilkynnti um að það væri hætt við áður boðað áætlunarflug á milli Frankfurt, Egilsstaða og Akureyrar.