„Ég hef séð mjög mikið af myndum og ég veit að það er fallegt landslag þarna. Við erum svo spenntir að Backstreet Boys séu að koma til Íslands í fyrsta sinn,“ sagði Brian sem var í símaviðtali í Brennslunni á FM957 í morgun.
Brian segist vita sitthvað um Ísland. „Ég veit að þið eruð með eina nyrstu höfuðborg í heimi sem er mjög einstakt. Svo hafa auðvitað allir heyrt um norðurljósin,“ segir Brian. Þá segist hann einnig vel meðvitaður um það að Íslendingar búi ekki í snjóhúsum eins og einhverjir virðast halda.
„Planið mitt er að koma nokkrum dögum fyrir tónleikana og fara í útsýnistúr og skoða landslagið. Ég hlakka mikið til.“

Hafa engu gleymt
Brian er einn af fimm meðlimum bandaríska strákabandsins Backstreet Boys, ásamt þeim AJ McLean, Howie Dorough, Nick Carter og Kevin Richardson. Sveitin var stofnuð árið 1993 og fagnar því 30 ára afmæli í ár.
„Þetta verða fyrstu tónleikarnir okkar sem þrjátíu ára hljómsveit. Þannig þetta verður tímamótakvöld og við hlökkum mikið til,“ segir hann.
Ísland er fyrsta stopp hljómsveitarinnar á nýju tónleikaferðalagi hennar. Brian segir að von sé á tveggja klukkutíma tónlistarveislu þar sem þeir munu taka öll sín vinsælustu lög. Þá munu þeir að sjálfsögðu taka eitthvað af sínum goðsagnakenndu danssporum sem Brian segir að drengirnir hafi ekki gleymt.
„Við þráðum þetta“
Drengirnir voru aðeins táningar þegar hljómsveitin var stofnuð. Frægðarsól þeirra reis hratt og urðu þeir ein allra vinsælasta hljómsveit tíunda áratugsins.
„Við höfðum vonir um að tónlistin okkar myndi hafa áhrif. Við þráðum þetta. Þegar ég segi að við höfum þráð þetta, þá á ég við að lögðum virkilega hart að okkur til þess að búa til aðdáendahóp sem myndi fylgja okkur um ókomna tíð.“ Þeim hefur heldur betur tekist ætlunarverkið því 30 árum síðar eru þeir ennþá að halda tónleika fyrir troðfullum tónleikahöllum.

Blóðugir aðdáendur mættu inn í búningsherbergið
Á öllum sínum tónleikaferðalögum hefur Brian séð og upplifað margt. Aðspurður hvað sé það klikkaðasta sem hann hefur lent í segir hann:
„Það fyrsta sem kemur upp í hausinn á mér var þegar tvær ungar dömur brutust inn í tónleikahöllina í Þýskalandi á meðan við sátum inni í búningsherberginu okkar. Þær höfðu klifrað yfir girðingu að aftan, fötin þeirra höfðu rifnað og það blæddi úr fótunum á þeim. Það var svolítið óhugnanlegt. Ég fór til þeirra og spurði hvort þær væru frá einhverri útvarpsstöð, en þær töluðu ekki ensku því við vorum í Þýskalandi. Þannig þær sögðu ekki neitt og ég þurfti að sækja öryggisvörð til þess að ná þeim út úr búningsherberginu.“
Þá segir hann frá því að eytt sinn hafi aðdáandi laumað sér inn í tónleikarútuna þeirra og ferðast með þeim langa vegalengd áður en þeir uppgötvuðu að hún væri meðferðis.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Brian í heild sinni hér að neðan.