Ákærudómstóllinn er liður í rannsókn dómsmálaráðuneytisins á tilraunum Trump og félaga til þess að snúa við tapi hans í kosningunum gegn Joe Biden. Pence er talinn geta vitnað um ákvðin samtöl og atburði í aðdraganda blóðugrar árásar stuðningsmanna Trump á bandaríska þinghúsið 6. janúar 2021, að sögn AP-fréttastofunnar.
Pence var stefnt til að bera vitni fyrr á þessu ári en Trump reyndi að koma í veg fyrir það og bar fyrir sig friðhelgi forsetaembættisins. Alríkisáfrýjunardómstóll hafnaði kröfu lögmanna hans.
Ekki er ljóst hvað Pence kann að hafa sagt ákærudómstólnum, ef eitthvað. Dómari sem hafnaði kröfu Trump í mars úrskurðaði að ekki væri hægt að knýja fyrrverandi varaforsetann til þess að svara spurningum um nokkuð sem tengist því þegar hann hafði umsjón með því að öldungadeild þingsins staðfesti kosningaúrslitin 6. janúar.
Í endurminningum sínum sem Pence birti nýlega sakaði hann Trump um að hafa stefnt fjölskyldu sinni og öllum þeim sem voru við þinghúsið þann dag í hættu. Sagan ætti eftir að dæma hann.
Þrýstu á Pence að staðfesta ekki úrslitin
Trump og bandamenn hans héldu, og halda enn, fram stoðlausum ásökunum um að stórfelld kosningasvik hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Í nokkrum ríkjum sem Trump tapaði fyrir Biden þar sem repúblikanar höfðu meirihluta á ríkisþinginu útbjuggu bandamenn hans falska lista með svokölluðum kjörmönnum sem kjósa formlega forseta.
Pence var beittur miklum þrýstingi að koma í veg fyrir að Bandaríkjaþing staðfesti úrslit forsetakosninganna 6. janúar þrátt fyrir að hann stýrði aðeins formlega fundinum þar sem það var gert. Það ætluðu Trump og félagar að nýta sér til þess að koma að listunum með fölsku kjörmönnunum og fá þingið þannig til þess að gera hann að forseta. Pence hafði hins vegar engin völd til þess að koma í veg fyrir að úrslitin væru staðfest.
Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins, rannsakar þessar tilraunir Trump til þess að snúa úrslitum kosninganna við. Hann hefur rætt við fjölda fyrrverandi ráðgjafa Trump, þar á meðal Pat Cipollone, yfirlögfræðing Hvíta hússins, og Stephen Miller.
Samhliða rannsakar Smith meðferð Trump á leyniskjölum sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti og hvort að hann hafi reynt að hindra rannsóknina á því.