Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna klukkan sjö, helst fyrr. Byrja þá á því að fá mér tvö góð vatnsglös. Annað með grænu næringarefni en síðan tek ég inn Astalýsi frá Saga Natura og Bee Pollen sem býflugur framleiða.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég er með 30-40 mínútna rútínu til að tryggja að ég stilli mig vel inn í daginn. Þessi rútína samanstendur af jóga sem er sambland af jóga og kínversku chi kong æfingum.
Ég enda síðan á tíu til fimmtán mínútna hugleiðslu til að ná alveg kyrrð í hjarta og hugann áður en ég fer út.
Oftast tek ég bók og skrifa niður hvernig mér líður eða hvað sem kemur upp í hugann.
Þegar ég er búinn að þessu fæ ég mér góðan kaffibolla og síðan fer ég vel stilltur inn í daginn.“
Er einhver karakter í íslenskum sjónvarpsþáttum sem þú samsvarar þig við?
„Sá fyrsti sem kom upp í hugann og eiginlega sá eini var Grímur skipstjóri í Verbúðinni sem Björn Hlynur Haraldsson lék svo frábærlega. Aðalatriðið við hann var að Grímur gerði bara sitt, er svona traustur karakter en gat verið helvíti ákveðinn þegar á hann var gengið.
Ástæðan fyrir því að ég tengi samt svona við hann er hversu agalega líkur hann er pabba mínum þegar ég var strákur, í vinnuskyrtunni og klippingin frá því þarna um 1970-80.
Mér fannst ég allan tímann vera að horfa á pabba þegar að ég horfði á þessa þætti. Yfirvegaður og rólegur aflaskipstjóri og þótt pabbi sé ekki sjómaður fannst mér eitthvað við fas Gríms sem minnti mig á pabba.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Fyrsta verkefnið til að nefna er að ég er alltaf að vinna í því að efla karlmenn og stráka í Ljósinu og því frábæra starfi sem unnið er þar. Ég er líka alltaf að vinna í því að koma því til skila hvað heilbrigð karlmennska er mikilvæg í samfélaginu og í heiminum. Fyrir stráka og stelpur, konur og karla, samfélagið allt. Þetta er gæluverkefni sem mér er mjög annt um og finnst mikilvægt.
Síðan er ég alltaf að vinna í alls konar námskeiðum hjá Profectus. Eins og til dæmis breytingastjórnun og að hjálpa fólki í gegnum breytingar hjá fyrirtækjum þar sem ég legg áherslu á að efla stjórnendur og starfsfólk innan frá. Að efla fólk innan frá finnst mér skemmtilegt verkefni og mikilvægt.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ef ég á að vera heiðarlegur var fyrsta svarið sem kom upp í hugann að ég geri það ekki. En auðvitað gengur það ekki þegar það er mikið að gera, mörg verkefni og í mörg horn að líta. Ég nota mikið bandaríska GTT kerfið, Get Things Done, sem David Allen bjó til enda ýmislegt gott í því.
Ég myndi lýsa þessu þannig að ég reyni að halda ekki utan um verkefni í höfðinu á mér, heldur finna frekar kerfi sem hausinn treystir.
Ég reyni frekar að tæma hugann reglulega, gríp í blöð eða bók til að höfuðið yfirfyllist ekki.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég hef þá prinsipp reglu að reyna að vera sofnaður fyrir miðnætti, svona á milli hálf tólf og tólf. Ef ég er syfjaður um eða yfir tíu, stend ég líka bara upp og fer inn að sofa. Því ég reyni að virða það sem líkaminn er að segja en hann er auðvitað misjafn, getur farið eftir því hversu mikið er að gera, þreytustigið okkar er misjafnt og svo framvegis. En góður svefn er lykilatriði svo allt annað virki þannig að ég reyni fyrst og fremst að virða það sem líkaminn segir mér.“