Sigur Valsmanna í fjórða leiknum í Þorlákshöfn þýðir að liðin mætast í kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum Subway deildar karla í körfubolta.
Oddaleikurinn fer fram í Origo höllinni á Hlíðarenda og hefst klukkan 20.15. Útsending Stöðvar 2 Sport hefst klukkan 19.45.
Aðeins fjögur lið í sögu úrslitakeppni karla í körfubolta hafa komið til baka eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi þar sem þarf að vinna þrjá leiki.
Þetta eru Keflvíkingar 2008, Haukar 2015, Þórsarar 2019 og ÍR-ingar 2019. Haukar, Þór og ÍR náðu þessu í átta liða úrslitum en Keflvíkingar komust í úrslit eftir að hafa unnið upp 2-0 forskot ÍR-inga í undanúrslitunum vorið 2008.
Keflavíkurliðið endaði á því að vinna sex síðustu leiki sína í úrslitakeppninni og verða Íslandsmeistari eftir 3-0 sigur á Snæfelli í lokaúrslitunum.
Líkt og Valsmenn þá voru Keflvíkingar á heimavelli í oddaleiknum 2008 en fyrir fjórum árum þá unnu bæði Þórsarar og ÍR-ingar oddaleikinn á útivelli. Haukar unnu oddaleikinn sinn 2015 á heimavelli.
Þórsliðið hefur þegar unnið einn oddaleik á útivelli í þessari úrslitakeppni því liðið vann tveggja stiga sigur á Haukum á Ásvöllum, 95-93, í rosalegum leik.
Þórsarar hafa í raun unnið þrjá oddaleiki í röð því þeir unnu einnig Stjörnuna í undanúrslitunum 2021 og Tindastól í átta liða úrslitunum 2019. Þórsarar töpuðu síðast í oddaleik á móti Grindavík í átta liða úrslitum 2017.
Valsmenn voru síðast í oddaleik í lokaúrslitunum í fyrra þegar þeir unnu Tindastól með þrettán stigum, 73-60, á Hlíðarenda. Þar áður töpuðu þeir í oddaleik á heimavelli á móti KR í átta liða úrslitum 2021.
Liðin sem hafa komið til baka eftir að hafa lent 2-0 undir:
- Keflavík í undanúrslitum á móti ÍR 2008
- Oddaleikur: Keflavík vann 20 stiga sigur í Keflavík (93-73)
- Haukar í átta liða úrslitum á móti Keflavík 2015
- Oddaleikur: Haukar unnu 17 stiga sigur á Ásvöllum (96-79)
- ÍR í átta liða úrslitum á móti Njarðvík 2019
- Oddaleikur: ÍR vann 12 stiga sigur í Njarðvík (86-74)
- Þór Þorl. í átta liða úrslitum á móti Tindastól 2019
- Oddaleikur: Þór vann 1 stigs sigur á Króknum (94-93)