Leikur eitt hefst klukkan 19.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. Upphitun hefst hálftíma fyrr. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki tryggir sér Íslandsmeistaratitilinn.
Liðin enduðu í tveimur efstu sætum deildarinnar og mættust einnig í bikarúrslitaleiknum. ÍBV vann tveggja marka sigur á Val í Laugardalshöllinni en í deildinni unnu Valskonur fimm marka sigur í Eyjum í október (31-26) en Eyjaliðið vann síðan þriggja marka sigur á Hlíðarenda í janúar (32-29).
Ágúst Þór Jóhannsson stýrði reyndar ekki Valsliðinu í janúarleiknum því hann var upptekinn með karlalandsliðinu á HM í Svíþjóð.
Þetta er í ellefta skiptið sem sömu lið mætast bæði í úrslitum Íslandsmótsins og í bikarúrslitaleiknum.
Sagan er ekki með liðinu sem kemur inn í einvígið sem bikarmeistari eftir sigur á sama liði fyrr veturinn. Sagan er því með Val en ekki ÍBV í þessu einvígi.
Aðeins tvö af tíu liðum hafa nefnilega náð að vinna sama lið í báðum úrslitum mætist þau bæði í bikarúrslitaleik og í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.
Valskonur náðu bæði að vinna tvo úrslitaleiki á móti Stjörnunni 2014 (24-19 í bikarúrslitum og 3-2 í úrslitaeinvíginu) og á móti Fram árið 2019 (24-21 í bikarúrslitum og 3-0 í úrslitaeinvíginu).
Hinir átta bikarmeistararnir hafa tapað í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn og þar á meðal eru Valskonur í fyrra.
Valur vann þá 25-19 sigur á Fram í bikarúrslitaleiknum en Fram vann úrslitaeinvígið 3-1.

- Tíu sinnum hafa lið mæst bæði í bikarúrslitum og úrslitaeinvígi um titilinn:
- 1995:
- Íslandsmeistari: Stjarnan
- Bikarmeistari: Fram
- 2001
- Íslandsmeistari: Haukar
- Bikarmeistari: ÍBV
- 2003
- Íslandsmeistari: ÍBV
- Bikarmeistari: Haukar
- 2010
- Íslandsmeistari: Valur
- Bikarmeistari: Fram
- 2011
- Íslandsmeistari: Valur
- Bikarmeistari: Fram
- 2014
- Íslandsmeistari: Valur
- Bikarmeistari: Valur
- 2016
- Íslandsmeistari: Grótta
- Bikarmeistari: Stjarnan
- 2017
- Íslandsmeistari: Fram
- Bikarmeistari: Stjarnan
- 2019
- Íslandsmeistari: Valur
- Bikarmeistari: Valur
- 2022
- Íslandsmeistari: Fram
- Bikarmeistari: Valur