Víkingur og Grótta mættust í Fossvoginum í dag en Víkingur hefur unnið alla leiki sína í Bestu deildinni til þessa á tímabilinu. Grótta leikur í Lengjudeildinni og hefur gert jafntefli í báðum leikjum sínum til þessa.
Helgi Guðjónsson kom Víkingum yfir strax á 12. mínútu í dag en Arnar Þór Helgason jafnaði metin sjö mínútum síðar. Staðan í hálfleik var 1-1 en Logi Tómasson tryggði Víkingum sæti í 8-liða úrslitum þegar hann skoraði sigurmark Víkinga snemma í síðari hálfleik.
Í Laugardalnum voru Íslandsmeistarar Blika í heimsókn hjá Þrótturum. Viktor Karl Einarsson kom Blikum í 1-0 snemma leiks og þeir bættu síðan við tveimur mörkum í síðari hálfleik. Færeyingurinn Klæmin Olsen kom Breiðablik í 2-0 á 57. mínútu og markahrókurinn Stefán Ingi Sigurðarson setti punktinn yfir i-ið í uppbótartíma. Lokatölur 3-0, öruggur sigur Blika staðreynd.
Í Kópavogi tók HK á móti KA í slag tveggja Bestu deildar liða. Gestirnir að norðan voru komnir í 2-0 eftir sextán mínútur með mörkum frá Ívari Erni Árnasyni og Hallgrími Mar Steingrímssyni. Bjarni Aðalsteinsson innsiglaði sigurinn á 85. mínútu með þriðja marki KA en lokatölur urðu 3-1 eftir sárabótamark frá Örvari Eggertssyni.
Síðasti leikur 16-liða úrslitanna fer fram í Árbænum í kvöld þegar Fylkir tekur á móti KR.