Þeir Scottie Scheffler, Viktor Hovland og Corey Conners eru þrír efstir og jafnir á fimm höggum undir pari eftir tvo daga á PGA meistaramótinu í golfi sem fram fer á Oak Hill vellinum í Rochester.
Scheffler lék á tveimur höggum undir pari í gær líkt og Conners en Hovland lék á þremur undir. Bruce Koepka lék best allra í gær á fjórum höggum undir pari og er ásamt Callum Tarren í sjötta sæti mótsins. Þar á milli eru Bandaríkjamennirnir Justin Suh og Bryan DeChambeau á þremur undir pari.
Suh. Dude knows how to putt. #PGAChamp pic.twitter.com/ZCS9VmjZqp
— PGA Championship (@PGAChampionship) May 19, 2023
Rory McIlroy er ekki langt undan en hann lék á einu undir í gær og er á pari samtals. Nokkur stór nöfn voru nálægt því að missa af niðurskurðinum en Jon Rahm var fyrir neðan niðurskurðarlínuna þegar hann átti sex holur eftir en náði þá þremur fuglum í röð og bjargaði sér.
Justin Thomas, sem á titil að verja á mótinu, fór síðustu holuna á einu yfir pari en rétt slapp við niðurskurð líkt og Jordan Spieth sem bjargaði pari úr glompu á síðustu holunni. Rahm, Thomas og Spieth eru allir á fimm höggum yfir pari.
Every major champion crowned at Oak Hill was among the Top-3 on the leaderboard at the end of Round 2.
— PGA Championship (@PGAChampionship) May 20, 2023
Will the streak continue?#PGAChamp pic.twitter.com/wXgKp0d8H2
Á meðal þeirra sem ekki náðu niðurskurðinum voru Si Woo-Kim, Alex Norén og Matt Kuchar. Mótið heldur áfram í dag en bein útsending frá því hefst á Stöð 2 Sport 4 klukkan 17:00.