Golfheimurinn nötraði í síðustu viku þegar tilkynnt var um samruna LIV- og PGA-mótaraðanna. Þjóðarsjóður Sádi-Arabíu (PIF) setti á fót sína eigin golfmótaröð til höfuðs PGA-mótaröðinni bandarísku í fyrra og síðan þá hafa þær eldað grátt silfur. En núna eru þær komnar í eina sæng ásamt Evrópumótaröðinni, DP World Tour. Enn á þó eftir að finna nafn á barnið.
Fréttirnar komu flestum ef ekki öllum í opna skjöldu enda hafði ekkert lekið út um mögulegan samruna mótaraðanna. Og margir kylfingar eru enn hálf ringlaðir, meðal annars Fitzpatrick sem vann Opna bandaríska meistaramótið í fyrra.
„Erum við að semja við PIF? Erum við ekki að semja við PIF? Ég hef ekki hugmynd. Enginn veit hvað er að gerast nema fjórir í heiminum,“ sagði Fitzpatrick.
„Allt þetta er mjög ruglingslegt. Þetta var líka ruglingslegt í fyrra,“ bætti Englendingurinn við.