Hér fyrir neðan má sjá öll mörkin úr leikjum gærkvöldsins hjá stelpunum en það er óhætt að segja að spennan sé mikil á toppi deildarinnar.
Breiðablik, Valur, Þór/KA og Stjarnan fögnuðu sigri í leikjunum en þrjú fyrst nefndu liðin eru í þremur efstu sætum deildarinnar.
Breiðablik og Valur eru jöfn á toppinum (20 stig) en Blikar eru með betri markatölu og svo eru norðankonur aðeins einu stigi á eftir (19 stig). Það eru síðan bara þrjú stig niður í fimmta sætið en Þróttur (18 stig) og FH (17 stig) eru skammt frá toppinum.
Agla María Albertsdóttir skoraði þrennu í 4-0 sigri Breiðabliks á Tindastól í Kópavogi en hún skoraði þó óvart annað markið sitt þegar liðsfélagi hennar, Hafrún Rakel Halldórsdóttir, skaut í hana og inn. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skoraði annað mark Blika í leiknum.
Tvö mörk frá markahæsta leikmanni deildarinnar, Bryndísi Örnu Níelsdóttur og eitt frá hinni sextán ára Ísabellu Söru Tryggvadóttur komu Val í 3-0 á móti FH en Heidi Samaja Giles og Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir minnkuðu muninn í 3-2 með mörkum undir lokin.
Gyða Kristín Gunnarsdóttir tryggði Stjörnunni 2-1 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum. Heiða Ragney Viðarsdóttir hafði áður komið Stjörnunni í 1-0 en Holly O'Neill jafnaði fyrir ÍBV.
Tahnai Lauren Annis tryggði Þór/KA 1-0 sigur á Keflavík en markið kom eftir aukaspyrnu í fyrri hálfleik.
Það má sjá öll þessi mörk hér fyrir neðan.