Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar er greint frá ráðningunni. Þar segir að Helga hafi áður starfað á sviði stjórnunar og rekstrar, stefnumótunar og mannauðsmála. Síðastliðin ár hafi hún starfað sem rekstrarstjóri mannvirkja í Úlfarsárdal og áður sem forstöðumaður þjónustusviðs Öskju. Þá hafi hún starfað sem forstöðumaður bíla- og tækjafjármögnunar hjá Landsbankanum.
Helga hefur lokið meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík og B.sc. prófi í verkfræði frá Háskóla Íslands.
„Ég er mjög ánægður með að fá Helgu til liðs við þann öfluga hóp starfsfólks sem starfar á menningar- og íþróttasviði borgarinnar. Reynsla hennar og menntun mun nýtast vel í þeim verkefnum sem hún mun sinna. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar.