Hann vann áhugamannamót í síðasta mánuði og tryggði sér þar með þátttökurétt á Opna breska 2023 og Masters og Opna bandaríska 2024.
Lamprecht hefur farið heldur betur vel af stað á fyrsta risamóti sínu og þegar þetta er skrifað er hann með forystu á Opna breska. Hann hefur leikið fyrstu fjórtán holurnar á fjórum höggum undir pari líkt og Thomas Pieters frá Belgíu.
Hinn 22 ára Lamprecht er óvenju hávaxinn af kylfingi að vera, eða 2,03 metrar á hæð. Hann hefur þó ekki bara vakið athygli fyrir það heldur einnig ljómandi góða spilamennsku á Opna breska sem hófst í morgun.
Efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler, er á tveimur höggum undir pari og Cameron Smith, sem á titil að verja á Opna breska, er á pari eftir fimm holur.
Fylgjast má með beinni útsendingu frá Opna breska á Stöð 2 Sport 4.