Vinkonurnar Gestheiður Guðrún Sveinsdóttir og Kristfríður Rós Stefánsdóttir opnuðu fyrstu Crossfit-stöð Snæfellsbæjar fyrir nokkrum árum á Rifi en Kristfríður og unnusti hennar, Jón Steinar Ólafsson sjá alveg um stöðina í dag, sem hefur heldur betur slegið í gegn.
Fjölmargir æfa reglulega á stöðunni og er boðið upp á fjölbreytta tíma. Þátttakendum finnst skemmtilegast þegar æfingarnar fara fram úti á plani við stöðina í næsta nágrenni við sjóinn og bátana í höfninni.
„Það er frábært hvað þetta þrífst i þessu samfélagi en þetta er bara lítið samfélag i Crossfitinu, en við erum rosalegur góður kjarni og allir, sem mæta hérna ganga alltaf glaðir út. Þetta eru bara forréttindi að geta boðið upp á svona,“ segir Kristfríður Rós og bætir við.
„Þetta er bara það skemmtilegasta sem ég geri og ekki skemmir fyrir þegar við æfum úti við höfnina og hjá bátunum, þetta er bara eitthvað svo voðalega sjarmerandi við það.“

„Þetta er alveg frábær stöð, alveg frábær, og bara enn og aftur, þvílík forréttindi að hafa þessa stöð hér í bæ,“ segir Kristgeir Kristinsson þjálfari á stöðinni.

„Þetta er mjög gaman. Eftir á tilfinningin er best, þá veit maður að það var vel tekið á því,“ segir Birgitta Rún Baldurdóttir sem æfir reglulega í stöðinni.
En hvað er svona skemmtilegt við þetta?
„Það er félagsskapurinn og það sem þetta gerir fyrir andlega heilsu líka og tilfinningin eftir á er alltaf best,“ segir Rebekka Heimisdóttir, sem æfir líka reglulega í stöðinni.