Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að spáin í dag hljóði upp á austlæga átt fimm til þrettán metra á sekúndu og dálitla skúri, en bjartviðri á Norðurlandi og rofi til á vestanverðu landinu þegar kemur fram á daginn. Hiti þrjú til níu stig. Hægara í kvöld og kólnar heldur.
Á morgun sé útlit fyrir hæga breytilega átt um allt land, skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar skúrir eða él. Hiti núll til sex stig.
Þegar rýnt er í spár lengra fram í tímann virðist eiga að vera aðgerðalítið veður fram eftir næstu viku.
Veðurhorfur næstu daga:
Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og rigning með köflum, en bjartviðri á vestanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig.
Á þriðjudag:
Breytileg átt 3-8 m/s og stöku skúr, en að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil. Hiti 1 til 6 stig.
Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag:
Austlæg átt og bjart með köflum, en dálítil væta af og til á austanverðu landinu. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn.