Ótrúleg innkoma Ísaks sem skoraði þrennu og lagði upp eitt Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. október 2023 23:01 Ísak Bergmann Jóhannesson var allt í öllu í ótrúlegum sigri Fortuna Dusseldorf í kvöld. Matthias Balk/picture alliance via Getty Images Ísak Bergmann Jóhannesson átti vægast sagt góða innkomu er hann kom inn af bekknum í mögnuðu 6-3 útisigri Fortuna Dusseldorf gegn Unterhaching í framlengdum leik í þýsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld.
Unterhaching, sem leikur í þriðju eftsu deild þýska fótboltans, tók óvænt forystuna þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og liðið leiddi því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Ísak Bergmann kom inn af varamannabekknum í hálfleik, en heimamenn bættu öðru marki við á 55. mínútu og útlitið því orðið nokkuð svart fyrir Ísak og félaga. Ísak lagði þó upp fyrsta mark gestanna á 65. mínútu og jafnaði svo sjálfur metin tveimur mínútum síðar. Heimamenn náðu þó forystunni á ný á 71. mínútu, en eftur var Ísak á ferðinni þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka er hann jafnaði metin á ný. Reyndist það seinasta mark venjulegs leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara. Þar reyndust gestirnir frá Dusseldorf mun sterkari og Ísak fullkomnaði þrennu sína á 107. mínútu. Gestirnir bættu svo tveimur mörkum í viðbót við áður en flautað var til leiksloka og niðurstaðan því ótrúlegur 6-3 sigur Fortuna Dusseldorf sem er á leið í 16-liða úrslit bikarsins. SCHLUSS! AUS! ACHTELFINALE!Was ein denkwürdiger Pokalabend 🥰#f95 | 🔴⚪️ | #UHGF95 | #DFBPokal (120.) pic.twitter.com/30rg1csedq— Fortuna Düsseldorf (@f95) October 31, 2023
Þýski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Sjá meira