Skoðun

Gagn­rýni: Svo lengi sem við lifum

Erna Mist skrifar

Íslendingar flytja til útlanda í þeim eina tilgangi að snúa aftur heim. Söguhetja þáttanna Svo lengi sem við lifum er þar engin undantekning, heldur dæmisaga þeirra sanninda: tónlistarkona sem ákveður að flytja heim eftir farsælan tónlistarferil með erlendan mann og barn í eftirdragi. Upphaflega er heimkoman eitt stórt spurningarmerki, en þegar útlit söguhetjunnar og viðhorft hennar gagnvart kynjaímyndum eru höfð til hliðsjónar koma ástæðurnar á færibandi: Bransinn var brenglaður, draumurinn dó um leið og hann var dreginn inn í veruleikann, og til að eiga möguleika á eðlilegu lífi var eina leiðin að elta upprunann og festa þar rætur. 

En spennufíknin slokknar ekki þó umhverfið hafi róast. Þó söguhetjan sé einfari að eðlisfari vakir innra með henni óseðjandi þrá eftir ofsablandinni nánd; fantasíum sem raungerast þegar ímyndunaraflinu tekst ekki að finna þeim farveg. Í stöðugum skilmingum við eigin langanir reynist listakonunni fjölskyldulífið ekki svo borðliggjandi, og þegar ungur maður flytur inn á heimilið til að stíga inn í hlutverk barnapíu fer heimilislífið endanlega úr böndunum. 

Fortíðardraugar á borð við fyrrum elskhuga og ófullkomna foreldra brjóta upp á framvinduna, en í stað þess að nýta áföll og fortíðarbresti til að útskýra hegðun og hugsanavillur söguhetjunnar (eins og vinsælt þykir í samtímasagnagerð sem einkennist af geðrænni greiningaráráttu og gegndarlausu fórnarlambsblæti) draga aukapersónurnar fram óvæntar hliðar á söguhetjunni sem berst við að samræma þessar hliðar. Hið sígilda samspil valdaójafnvægis og forboðins aðdráttarafls tekur á sig ólíkar birtingarmyndir í kringumstæðum sem eru í senn framandi og kunnulegar; senum sem sýna mann sjálfan í skálduðum persónum. 

Svo lengi sem við lifum er fyrst og fremst óður til frelsisins, þeirrar sammannlegu sálarhvatar til að skera á bönd hinna stöðnuðu hversdagshátta og losna undan fjötrum samfélagsgerðar sem skyldar okkur til að velja eina útgáfu af sjálfum okkur og bæla hinar niður. Söguhetja þáttanna er kærkomin nýjung í persónugallerí íslenskrar sjónvarpsgerðar - kona sem kýs frelsið frelsisins vegna; óvissuna fram yfir klisjuna. 

Þættina skrifar Aníta Briem, Katrín Björgvinsdóttir leikstýrir.

Höfundur er listmálari. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×