Mikilvæg stig í súginn hjá Bayern Smári Jökull Jónsson skrifar 17. desember 2023 19:29 Bayern Munchen tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni í kvöld. Vísir/Getty Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern Munchen töpuðu mikilvægum stigum gegn næst neðsta liði þýsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Glódís Perla var á sínum stað í byrjunarliði Bayern sem fyrir leikinn var í efsta sæti deildarinnar, einu stigi á undan Wolfsburg sem mætir Werder Bremen á morgun. Búist var við þægilegum sigri Bayern enda Nurnberg í næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir níu umferðir. Svo fór hins vegar ekki. Lea Schuller tók vissulega forystuna fyrir Bayern strax á 11. mínútu leiksins en Nurnberg tókst að jafna í síðari hálfleiknum með marki Medina Desic úr vítaspyrnu. Bayern átti meira en tuttugu marktilraunir í leiknum en náði engu að síður ekki að bæta við marki. Lokatölur 1-1 og mikilvæg stig í súginn hjá liði Glódísar Perlu en hún náði sér í gult spjald í leiknum. Wolfsburg getur náð toppsætinu með sigri á morgun en Sveindís Jane Jónsdóttir hefur verið fjarverandi hjá Wolfsburg síðustu vikur vegna meiðsla.
Þýski boltinn Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Sjá meira