Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort eitthvað leyndist í ferðatöskunni sem gæti komið fólki á óvart að væri þar.
„Ég tek mikið af græjum með mér. Ipad, tölvu og svo er ég með statíf til að setja á náttborðið svo ég geti hengt upp Ipadinn. Annars er þetta bara klassískt. Nóg af nærbuxum og handboltaskó, þá ertu í nokkuð góðum málum,“ sagði Bjarki Már Elísson léttur, á æfingu landsliðsins skömmu áður en mótið hófst. Svörin má sjá í myndbandinu hér að neðan.
„Maður er með fullt af jólagjöfum í töskunni sem maður þarf að taka með aftur til Frakklands. Annars ekkert rosalega óvenjulegt. Bara föt og jólafötin og svona,“ sagði Kristján Örn Kristjánsson, Donni, sem hefur þurft að sætta sig við að vera utan hóps í leikjunum gegn Serbíu og Svartfjallalandi. Hann er til taks og tekur fullan þátt í öllum æfingum, og hefur gert frá því að íslenska liðið hóf æfingar á Íslandi um jólin. Donni keypti sér tölvuleik fyrir mótið:
„Ég er með tölvuna með mér til að vera á YouTube og spila tölvuleiki og svona. Það var nú ágætlega mikilvægt þegar við vorum í Covid-aðstæðunum að vera með eitthvað til að gera. Ég var að byrja að spila Baldursgate 3, og er rosa spenntur fyrir honum. Ég held ég muni eiga nægan tíma til að spila hann, svo ég ákvað að kaupa hann og sjá hvernig gengur,“ sagði Donni.
Ómar Ingi Magnússon glotti bara þegar hann var spurður um hvort eitthvað óvenjulegt leyndist í ferðatöskunni. Svo er ekki.
„Ég er ekki hjátrúarfullur eða neitt þannig, og ekki með neina rútínu eða slíkt. Ég er bara með það sem ég þarf til að spila handbolta,“ sagði Ómar. Er hann ekki einu sinni með spilastokk?
„Nei, ekki einu sinni. Ég er bara með Ipadinn og símann. Þá er ég góður.“
Næsti leikur Íslands á EM er við Ungverjaland á morgun klukkan 19.30. Öflugt teymi Vísis er á staðnum og fjallar ítarlega um mótið í máli og myndum.