Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði bjart með köflum sunnantil en mögulega snarpir vindstrengir við fjöll og sums staðar skafrenningur.
Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og mun svo dregur aðeins úr vindi í nótt.
„Norðlæg átt 8-13 á morgun en norðvestan 13-18 við fjöll um suðaustanvert landið. Bjart að mestu sunnanlands en él fyrir norðan. Léttir til norðvestantil þegar líður á daginn. Áfram kalt í veðri.
Breytileg átt 3-10 á fimmtudag en norðvestan 8-15 suðaustantil fyrri part dagsins. Bjart veður í flestum landshlutum en dálítil él sums staðar við ströndina. Herðir á frosti, 8 til 20 stiga frost um kvöldið.
Veðrið breytist lítið á föstudag, en auknar líkur á snjókomu um helgina og dregur smám saman úr frosti,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Norðan 8-13 m/s en 13-18 sums staðar suðaustantil. Léttskýjað um landið sunnanvert, en él fyrir norðan. Frost 2 til 8 stig. Dregur víða úr vindi og kólnar um kvöldið.
Á fimmtudag: Norðlæg átt 3-8, en 8-13 með austurströndinni. Víða þurrt og bjart veður, en dálítil él við norður- og austurströndina. Frost 3 til 13 stig, minnst við sjóinn.
Á föstudag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost 5 til 17 stig.
Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Víða þurrt en dálítil snjókoma vestanlands og einnig syðst á landinu. Dregur aðeins úr frosti.
Á sunnudag: Austlæg átt og víða dálítil snjókoma eða él, en léttskýjað norðantil. Frost 0 til 12 stig, mildast suðvestantil.
Á mánudag: Vaxandi sunnanátt, snjókoma og hiti nálægt frostmark vestantil á landinu en hægari, yfirleitt bjart og talsvert frost austanlands.