„Þetta er sannarlega stórviðburður þar sem Nina er vön að spila fyrir þúsundir og telst vera einn frægasti plötusnúður heims. Margir telja hana frumkvöðul í teknó tónlistinni, en hún hefur ýtt rafrænni neðanjarðartónlist áfram á þann hátt sem enginn annar hefur gert,“ segir Arnviður, betur þekktur sem Addi Exos, sem vinnur að því að koma henni til landsins.
Hefur haft mikil áhrif
Hann segir áhrif hennar sem kvenkyns plötusnúðar að gæta víða.
„Það er deginum ljósara að hún opnaði hliðið fyrir kvenplötusnúða. Ég sá það með mínum eigin augum þegar hún byrjaði hvað það vakti upp konur,“ segir Arnviður en hún byrjaði að spila um 2015.
Hann segir að fyrir það hafi auðvitað verið mörg þekkt nöfn kvenkyn plötusnúða alþjóðlega eins og Monika Kruse, Misstress Barbara og Ellen Alien en að engin þeirra hafi náð sömu hæðum og Nina Kraviz.
Kraviz spilar aðallega teknó en hann segir hana einnig hafa komið nærri deep house og tech house senunni.

Arnviður spilar einnig á Radar á laugardaginn auk Lafontaine, Samwise, eiganda Radar og Díu sem sé einn fastaplötusnúða staðarins.
„Nina spilar þarna á 300 manna stað en er vön að spila fyrir þúsundir á risastórum viðburðum. Þetta verður exklúsívt gigg,“ segir hann og að viðstöddum gefist þannig tækifæri á að vera í miklu návígi við hana.
„Radar er að taka senuna með þvílíkri hörku,“ segir hann og að sem dæmi hafi síðustu helgi plötusnúðurinn Anja Schneider spilað og von sé á fleiri erlendum plötusnúðum.
Hægt er að kaupa miða á viðburðinn hér og hlusta á nokkur DJ-sett Ninu hér að neðan.
Í Barcelona síðasta sumar
Á Tomorrowland í Belgíu síðasta sumar
Í Gobi eyðimörkinni í Mongólíu í haust