Kylian Mbappe byrjaði nefnilega á varmannabekknum í 2-2 jafntefli PSG á heimavelli á móti Reims í dag og fékk ekki að koma inn á völlinn fyrr en sautján mínútum fyrir leikslok.
PSG er engu að síður með tíu stiga forskot á toppi frönsku deildarinnar. Reims er í níunda sætinu.
Mbappe er langmarkahæstur í deildinni með 21 mark en hefur fengið takmarkað að spila í þessum þremur jafnteflisleikjum í röð.
Mbappe spilaði nær alla leiki Parísarliðsins áður en hann tilkynnti að hann væri á förum en eftir það er bæði verið að taka hann út af í hálfleik sem og að byrja með hann á bekknum.
Þjálfarinn Luis Enrique segir taka þessar ákvarðanir einn en margir efast reynda um að það sé satt.
Það byrjaði ekki vel í dag án Kylian Mbappe. Marshall Munetsi kom Reims yfir eftir aðeins sjö mínútna leiks en PSG sneri við leiknum með tveimur mörkum á tveimur mínútum.
Það fyrra var sjálfsmark á 17. mínútu en það seinna skoraði Goncalo Ramos á 19. minútu.
Oumar Diakite hafði lagt upp fyrsta markið hjá Reims og hann skoraði annað markið sjálfur á lokamínútu fyrri hálfleiksins eftir stoðsendingu frá Emmanuel Agbadou.
Staðan var 2-2 í hálfleik og það reyndust vera lokatölur leiksins. Mbappe kom inn á á 73. mínútu en tókst ekki að skora sigurmark ekki frekar en öðrum leikmönnum á vellinum.