Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, munu á fundinum gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að ákveðið hafi verið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan og í vaktinni að neðan.