Álftanesliðið vann í gærkvöldi 21 stigs sigur á Keflavík, 76-55, og jafnaði einvígi liðanna í átta liða úrslitum Subway deildar karla.
Metið var áður í eigu nágranna þeirra í Stjörnunni. Stjarnan vann tuttugu stiga sigur á Snæfelli í fyrsta heimaleik sínum í úrslitakeppni var í átta liða úrslitunum 2009.
Stjarnan jafnaði þá metin í einvígi á móti Snæfelli með 99-79 sigri. Þá þurfti bara að vinna tvo leiki í átta liða úrslitunum og Snæfell fór áfram eftir sigur á Stjörnumönnum í oddaleik í Stykkishólmi.
Svo skemmtilega vill til að Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftanesliðsins í dag, var leikmaður Stjörnuliðsins í umræddum leik.
Kjartan skoraði reyndar bara tvö stig í leiknum en stal þremur boltum, tók fimm fráköst og Stjarnan vann með 14 stigum þær rétt tæpu 23 mínútur sem hann spilaði.
Justin Shouse var atkvæðamestur í Stjörnuliðinu með 28 stig, 7 fráköst, 7 stoðsendingar og 5 stolna bolta en Jovan Zdravevski skoraði 25 stig.
Kjartan Atli sló því í gær metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður fimmtán árum fyrr.
- Stærsti sigur í fyrsta heimaleik félags í úrslitakeppni 1984-2024:
- 21 stig
- Álftanes á móti Keflavík 2024 (76-55)
- 20 stig
- Stjarnan á móti Snæfelli 2009 (99-79)
- 16 stig
- KR á móti Val 1984 (87-71)
- 15 stig
- Valur á móti KR 1984 (76-61)
- 12 stig
- Skallagrímur á móti Keflavík 1993 (80-68)
- 11 stig
- ÍA á móti Grindavík 1994 (91-80)
- 9 stig
- KFÍ á móti Njarðvík 1998 (96-87)