Óskar Bjarni Óskarsson stýrir Valsmönnum í kvöld í fyrri undanúrslitsleik sínum á móti rúmenska félaginu CS Minaur Baua Mare. Valsmenn hafa enn ekki tapað leik í Evrópu á þessari leiktíð en verða að ná í hagstæð úrslit fyrir síðari leikinn í Rúmeníu.
Leikurinn fer fram í N1 höllinni á Hlíðarenda og hefst klukkan 19.30.
Valsliðið sló annað rúmenskt lið út úr átta liða úrslitum keppninnar en hefur einnig slegið út lið frá Litháen, Eistland, Slóvakíu og Serbíu í EHF-bikarnum í vetur. Valsmenn hafa líka unnið alla tíu leiki sína í keppninni til þessa.

Valsmenn voru einnig í þessari stöðu fyrir sjö árum en duttu þá úr leik í undanúrslitunum á móti rúmenska liðinu AHC Potaissa Turda. Núna geta þeir farið einu skrefi lengra.
„Það væri mjög gaman fyrir okkur og mjög gaman fyrir strákana, þjálfarana í kringum þetta, félagið og íslenskan handbolta. Árangur í Evrópukeppni gefur öllum í öllum íþróttum og hvað þá hinum handboltaliðunum,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson í samtali við Aron Guðmundsson á blaðamannafundi Valsmanna fyrir leikinn í kvöld.
„Það er klárlega spennandi að vera komnir aftur í þessa stöðu að eiga möguleika á úrslitaleik. Það er nokkuð ljóst að við þurfum að eiga toppleik hérna heima og fá mikinn og góðan stuðning. Þetta er hörkulið og við stefnuna á það að spila vel.,“ sagði Óskar Bjarni.
Valsmenn þurfa að taka með sér gott veganesti í seinni leikinn.
„Við treystum okkur alveg að fara út og spila vel við þá þar. Við gerðum það á móti Motor og gerðum það á móti Metaloplastika. Það er ekkert lífsnauðsynlegt þótt að það sé alltaf betra,“ sagði Óskar en það má heyra hann fara yfir mótherjana hér fyrir neðan.
„Við þurfum að vera klárir í alvöru leik og spila mjög vel. Við erum góðir og þeir eru góðir. Þetta verður bara handboltaveisla,“ sagði Óskar.
Það má horfa á allt viðtalið hér fyrir neðan.