Daníel Ingi varð í gær Norðurlandameistari í langstökki á nýju Íslandsmeti þar sem að hann stórbætti þrjátíu ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar í greininni.
Daníel stökk 8,21 metra og bætti þar með Íslandsmet Jóns Arnars og tryggði sér um leið Norðurlandameistaratitilinn í greininni.. Met Jóns Arnars var sléttir átta metrar en Daníel sló það í þriðju tilraun sinni í gær með stökki upp á 8,01 metra og í fjórða stökki sínu bætti hann um betur og stökk 8,21 metra.

„Ég gat nú ekki annað en farið beint að horfa á þetta stökk hjá honum. Algjörlega geggjað,“ segir Jón Arnar í samtali við Vísi um afrek Daníels Inga. Jón Arnar var á leið heim í bíl sínum er hann heyrði í útvarpsfréttunum í gær að þrjátíu ára Íslandsmet hans í langstökki hefði verið slegið.
„Ég var bara á leiðinni heim og fór náttúrulega strax í það að koma áleiðis hamingjuóskum á drenginn. Hann átti síðasta stökkið sitt eftir þarna í Malmö og ég var nú þegar búinn að senda honum hamingjuóskir fyrir það stökk.
Mér finnst þetta frábært. Met eru sett til þess að verða á endanum slegin. Ég var nú aldrei einhver langstökkvari. Þetta var ein af þeim tíu greinum sem ég þreytti í tugþrautinni. Það er frábært að það gangi svona vel hjá Daníel Inga.“

Þú grætur það ekkert að sjá á eftir þessu meti þínu, sem stóð í þrjátíu ár, í hans greipar?
„Nei alls ekki. Ég er svo ánægður fyrir hans hönd að vera kominn á þennan stað. Að það gangi svona vel hjá honum. Þetta opnar hurðir inn í stóra heiminn fyrir hann. Daníel hefur alla burði til þess að sækja bara fram. Það er tugþrautarþjálfari að þjálfa hann. Daníel fær því gott utanumhald og það þarf að standa þétt við bakið á honum sem og öllu frjálsíþróttafólki okkar.“
Stökk Daníels var það tólfta lengsta í heiminum á árinu og með því tryggði hann sér sæti á EM í Róm í júlí. Einnig gefur þetta honum möguleika á sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar en lágmarkið er 8,27 m. Daníel jafnaði tólfta besta árangur á heimslista og á því möguleika á sæti á leikana gegnum heimslistann.

„Þá fáum við kannski loksins aftur svona frjálsíþrótta vor og sumar. Það eru krakkar að koma þarna á hraðsiglingu upp. Það er vonandi að við fáum frjálsíþróttamann á Ólympíuleikana með Guðna Val og Hilmari.“
Jón Arnar var búinn að bíða lengi eftir því að sjá Íslandsmet sitt falla.
„Mér finnst nú eiginlega bara ótrúlegt að þetta hafi staðið svona lengi. Ekki var ég langstökkvari þegar að ég setti þetta met. Ég var ekki einu sinni farin að æfa tugþraut þegar að ég setti þetta met á sínum tíma. Var nýkominn til baka úr fótbroti. Það stóð en er nú fallið. Sem betur fer. Loksins.“