Árásirnar hófust í gærkvöldi og segja heimildarmenn AP fréttaveitunnar að þær hafi beinst að neðanjarðarbyrgjum Húta, skotpöllum fyrir eldflaugar, stjórnstöðvar, minnst einu skipi eða bát og öðrum skotmörkum.
Í heildina voru sex árásir gerðar, samkvæmt Hútum. Þeir halda því fram að eingöngu óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum segja árásir hafa verið gerðar á þrettán skotmörk.
May 30 U.S. Central Command Update
— U.S. Central Command (@CENTCOM) May 30, 2024
Between approximately 3:15 and 5 p.m. (Sanaa time) on May 30, U.S. Central Command (USCENTCOM) forces successfully destroyed eight uncrewed aerial vehicles (UAV) in Iranian-backed Houthi controlled areas of Yemen and over the Red Sea.… pic.twitter.com/uxtPyVecpU
Meðal annars var notast við F/A-18 herþotur frá Eisenhower til árásarinnar og Typhoon FGR4 þotur frá Bretlandi en önnur herskip komu einnig að þeim. Hútar sögðust í morgun hafa skotið eldflaugum og drónum að flugmóðurskipinu en það hefur ekki verið staðfest. Heimildarmenn AP segja ekkert ama að flugmóðurskipinu.
Bretar og Bandaríkjamenn, og þá sérstaklega þeir síðarnefndu, hafa gert fjölmargar árásir gegn Hútum. Þær hófust eftir að Hútar byrjuðu að gera árásir á flutningaskip sem verið var að sigla um Rauðahaf og Adenflóa.
Hópurinn stjórnar Sanaa, höfuðborg Jemen, og stórum hlutum landsins í norðri og vestri. Átökin hafa leitt til hrikalegs mannúðarástands í Jemen, þar sem fátækt er mikil. Hungursneyð og smitsóttir hafa leikið í íbúa landsins grátt.
Til að komast inn í Rauðahaf úr suðri og þaðan gegnum Súesskurðinn inn á Miðjarðarhafið þarf að sigla skipum um Aden-flóa og Bab al-Mandab-sund. Skipin fara því mjög nærri ströndum Jemen og yfirráðasvæði Húta. Á undanförnum mánuðum hafa Hútar skotið eldflaugum og flogið sjálfsprengidrónum að flutningaskipum og herskipum.

Í heildina hafa Hútar gert árásir á rúmlega fimmtíu skip. Þrír sjóliðar hafa fallið í þessum árásum og eitt skip hefur sokkið. Þá hafa hútar tekið eitt skip yfir. Nú í vikunni gerðu Hútar árás á skip sem notað var til að flytja korn til Íran en það eru helstu bakhjarlar Húta.
Sjá einnig: Fyrstu mannslátin vegna árása Húta á Rauðahafi
Íranar hafa útvegað Hútum eldflaugar og dróna fyrir árásirnar og eru einnig sagðir hafa hjálpað Hútum að finna og velja skotmörk.
Hútar héldu því fram á miðvikudaginn að þeir hefðu skotið niður MQ-9 Reaper dróna með flugskeyti. AP segir mögulegt að sá hafi verið í eigu Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) en útlit er fyrir að Bandaríkjamenn hafi tapað þremur slíkum drónum yfir Jemen í þessum mánuði.