Mjanmarski herinn greindi frá því snemma í morgun að tala látinna hefði hækkað upp í að minnsta kosti 1.002. Þar að auki séu nærri 2400 manns slasaðir og þrjátíu enn saknað.
Þá eru minnst sex látnir eftir að hafa orðið undir rústum háhýsis í byggingu í Bangkok höfuðborg Taílands. Breska ríkisútvarpið hefur eftir taílenskum embættismönnum að óttast sé að um hundrað manns séu enn undir rústunum en reiknað sé með að um fimmtán manns séu enn við lífsmark. Björgunarmenn leita þar enn af fullum krafti.

Min Aung Hlaing, yfirherforingi Mjanmar, hefur gert ákall eftir aðstoð frá öðrum þjóðum, sem er sjaldgæft af mjanmörskum yfirvöldum en þar hafa herforingjar verið við völd frá 2021 þegar mjanmarski herinn framdi valdarán gegn þáverandi stjórn.
„Ég býð hvaða landi, stofnun eða einstaklingi sem er inn í Mjanmar til að aðstoða okkur, takk,“ sagði Hlaing í ávarpi í gær. Bandaríkin, Evrópusambandið, Samband Suðaustur-Asíuríkja og Kína hafa heitið stuðningi.
Að öðru leyti hafa upplýsingar frá mjanmörskum yfirvöldum verið af skornum skammti. Blaðamaður BBC ræddi við sjálfboðaliða sem vinnur að björgunaraðgerðum í Mandalay. Hann segir ekki nóg til af tækjum og vélum til að grafa upp rústirnar.
„Við erum að grafa eftir fólki með berum höndum. Það dugir ekki til að ná fólkinu sem er fast undir rústunum upp úr þeim,“ hefur blaðamaðurinn eftir honum.
„Fólk hrópar: hjálp, hjálp. Þetta er vonlaust.“