Óhætt er að segja að öllu hafi verið tjaldað til þegar sköthjúin létu pússa sig saman á Sigló.
Veislugestir fjölmenntu norður í land og mættu margir hverjir á föstudeginum til að gera almennilega helgi úr þessu. Flestir komu úr höfuðborginni sem þýðir fimm klukkustunda akstur eða svo hvor leið.
Það er ef þú ákveður að aka stystu leið um Vesturlandsveg.
Hringvegurinn býður auðvitað upp á möguleikann að aka hringveginn í hina áttina, sem býður meðal annars upp á útsýnisstopp við Jökulsárlón og fleiri vinsæla ferðamannastaði. Sú leið frá Reykjavík til Siglufjarðar tekur aftur á móti þrettán klukkustundir í akstri.
Brynjar Bjarkason lagði upp í brúðkaupið ásamt kærustu sinni Helgu Þóru Bjarnadóttur og heppinni vinkonu sem slóst með í ferðalagið. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu lögðu þau líkt og fleiri af stað á föstudeginum og eftir langan akstur komu þau á áfangastað. Sem því miður var rangur.

Þríeykið var nefnilega ekki mætt á Siglufjörð heldur á Seyðisfjörð. Níu tíma akstur að baki og fleiri tímar í akstri fram undan til að ná á áfangastað. Það vill svo skemmtilega til að það tekur um það bil jafnlangan tíma að keyra frá Seyðisfirði til Siglufjarðar eins og frá Reykjavík til Siglufjarðar.

Brynjar og Helga Þóra mættu samkvæmt upplýsingum fréttastofu í tæka tíð fyrir brúðkaupið og líklega með smá ferðaþreytu eftir hátt í fjórtán tíma akstur á rúmum sólarhring. Það stoppaði Brynjar ekki á sviðinu í brúðkaupsveislunni þar sem þeir Aron Kristinn Jónsson, Club Dub bræður, fóru að sögn veislugesta á kostum.
Aron Kristinn og Brynjar fóru líka á kostum í Einkalífinu á Vísi árið 2019.
Hrakfarir Brynjars og Helgu Þóru urðu veislugestum enn eitt tilefnið til að brosa og hlæja í veislunni sem tókst vel til. Rifjuðu margir upp umræðu í kringum sjónvarpsþættina Ófærð sem teknir voru að hluta á Seyðisfirði en gerðust á Siglufirði.
Þá rifjuðu sumir upp ferðasögu Bandaríkjamannsins Noel Santillan frá New Jersey sem bókaði sér hótel á Laugavegi í Reykjavík en endaði bíltúr sinn frá Keflavíkurflugvelli á Laugarvegi á Siglufirði.
Bíltúrinn reyndist Noel vel sem var eins og blóm í eggi á Siglufirði og átti eftir að leika í auglýsingu fyrir Hótel Sigló. Koma verður í ljós hvort bíltúr þeirra Brynjars og stelpnanna verði innblástur við lagasmíð hjá popp- og raftónlistartvíeykinu.