Agnes María Svansdóttir var valin úr kvennaliðinu en hún spilaði langmest af öllum leikmönnum liðsins og kláraði mótið með 18,3 stig og 4,7 gripin fráköst að meðaltali í leik.
Tveir íslenskir leikmenn voru valdir í úrvalslið karla. Þeir Almar Orri Atlason, uppalinn KR-ingur sem spilar með Bradley háskólanum í Bandaríkjunum og Tómas Valur Þrastarson, leikmaður Þórs frá Þorlákshöfn á nýafstöðnu tímabili og verðandi leikmaður Washington State háskólans.
Almar var lang stigahæstur í íslenska liðinu með 28,3 stig, auk 6 frákasta og 2 stoðsendinga að meðaltali í leik.
Tómas Valur fylgdi honum á eftir í stigasöfnun með 19,3 stig, auk 7,3 frákasta og 1,3 varins bolta að meðaltali í leik.
Norðurlandamóti 20 ára og yngri er lokið og nú fer fram Norðurlandamót 18 ára og yngri. Í dag spilar íslenska stúlknalandsliðið gegn Danmörku klukkan 13:45 og íslenska drengjalandsliðið klukkan 16:00, einnig gegn Danmörku. Allar helstu upplýsingar um mótið má finna hér.