Deildirnar hafa heitið Subway deild karla og kvenna síðustu ár en nú breyta þær um nafn.
KKÍ og Bónus hafa nefnilega gert samstarfssamning sín á milli og verður Bónus einn af aðal samstarfsaðilum KKÍ.
Úrvalsdeildir karla og kvenna munu nú bera nafn Bónus, Bónus deildin en einnig mun Bónus styðja við landsliðs- og afreksstarf KKÍ.
„Markmið samstarfs KKÍ og Bónus er að gera sýnileika Bónus sem mestan í körfuknattleik á Íslandi og hvetja almenning að versla heilsusamlegar vörur. Sérstök áhersla verður á ávexti og grænmeti ásamt öðrum vörum í Bónus og þannig efla lýðheilsu landsmanna enn frekar og mun Bónus því koma með ferska sýn inn í starfsemi KKÍ og körfuboltans á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu frá KKÍ.
Fyrsti leikur í Bónus deild kvenna á næsta keppnistímabil hefst 1. október og fyrsti leikur í Bónus deild karla 3. október.