Tillögurnar sem Hvíta húsið kynnir í dag gera meðal annars ráð fyrir að sitjandi forseti skipi hæstaréttardómara á tveggja ára fresti. Dómararnir verði skipaðir til átján ára í stað lífstíðar. Markmiðið er sagt að tryggja endurnýjun réttarins og gera tilnefningaferlið fyrirsjáanlegra en það er nú.
Hæstiréttur Bandaríkjanna er áhrifamikill í stjórnskipan landsins. Dómarar þar eru skipaðir til lífstíðar og þeir eru ekki bundnir af siðareglum, ólíkt dómurum á öðrum stigum dómskerfisins og opinberum embættismönnum. Frá 2016 hafa tveir dómarar látist í embætti, annar þeirra 79 ára en hinn 87 ára gamall.
Störf réttarins hafa orðið æ umdeildari í seinni tíð og traust almennings til hans er nú í lægstu lægðum í skoðanakönnunum. Honum er nú stjórnað af afgerandi meirihluta íhaldssamra dómara sem voru skipaðir af forsetum úr röðum Repúblikanaflokksins, þar á meðal þremur sem Donald Trump skipaði.

Umdeildir dómar og bitlausar siðareglur
Íhaldsmennirnir sex hafa veitt repúblikönum og Trump sérstaklega hvern sigurinn á fætur öðrum á undanförnum misserum, stundum með því að snúa við áratugalöngu dómafordæmi eins og þegar þeir afnámu rétt kvenna til þungunarrofs og takmörkuðu völd ríkisstofnana.
Til að bæta gráu ofan á svart hafa nýlega komið upp mál þar sem í ljós kom að dómarar höfðu þegið alls kyns gjafir og sporslur frá fjársterkum aðilum sem áttu hagsmuni undir í málum sem komu til kasta réttarins.
Þá var fjallað um umdeilda fána sem tengdust stuðningsmönnum Trump og lygum hans um meint kosningasvik sem var flaggað við hús eins íhaldssamasta dómarans við réttinn á dögunum. Eiginkona annars var virkur þátttakandi í því að reyna að hnekkja kosningaúrslitunum. Hvorugur þeirra sagði sig frá málum sem tengdust síðustu kosningum þrátt fyrir það. Dómararnir hafa sjálfdæmi um hæfi sitt.
Staðan „ekki eðlileg“
Þrátt fyrir vaxandi reiði demókrata út í réttinn og ástand mála hefur Biden forseti verið tregur til þess að styðja breytingar á réttinum, ekki síst hugmyndir um að fjölga dómurum til þess að jafna hlutföllin á milli íhaldsmanna og frjálslyndra dómara.
Í aðsendri grein sem birtist í Washington Post í dag skrifar Biden að hann beri mikla virðingu fyrir stofnunum ríkisins og aðgreiningu ríkisvaldsins.
„Það sem á sér stað núna er ekki eðlilegt og það grefur undan tiltrú almennings á ákvörðunum réttarins, þar á meðal þeirra sem snúast um einstaklingsfrelsi. Við stöndum núna í skarðinu,“ skrifar forsetinn sem dró nýlega framboð sitt til forseta til baka.
Biden vill einnig að þingheimur samþykki stjórnarskrárbreytingu til þess að vinda ofan af tímamótadómi hæstaréttar frá því í sumar um að Bandaríkjaforseti njóti nær algerrar friðhelgi fyrir saksókn fyrir allar gjörðir sem tengjast opinberum athöfnum hans líkt og verjendur Trump í sakamáli á hendur honum héldu fram. Sá dómur þýddi að niðurstaða fæst ekki í sakamál á hendur Trump vegna tilrauna hans til þess að snúa við úrslitum síðustu kosninga fyrir þær næstu.
Innlegg í kosningabaráttu demókrata
Litlar líkur eru á að hugmyndir Biden nái fram að ganga. Repúblikanar eru með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og flokkarnir hafa jafnmarga þingmenn í öldungadeildinni. Þó að demókratar ráði efri deildinni í raun með atkvæði varaforseta þarf í reynd aukinn meirihluta til þess að koma málum í gegn þar setji minnihlutinn sig upp á móti frumvarpi.
Tillögurnar eiga þess í stað að hjálpa demókrötum að hamra á því við kjósendur hversu miklu máli atkvæði þeirra skiptir fyrir kosningarnar í nóvember. Kamala Harris, varaforseti, sem tekur væntanlega við kyndlinum af Biden sem forsetaefni demókrata hefur lýst kosningunum sem vali á milli „frelsis og glundroða“.

Margir demókratar vonast til þess að beisla óánægju margra kjósenda með takmarkanir og sums staðar nær algert bann við þungunarrofi sem Hæstiréttur lagði blessun sína yfir og eru almennt óvinsælar.
Trump hefur sakað demókrata um að reyna að rústa réttarkerfinu með hugmyndum um breytingar á Hæstarétti.