Þar segir einnig að það verði dálítil væta af og til í flestum landshlutum og sums staðar þokuloft við norður- og austurströndina. Um helgina verður hægviðri, skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum síðdegis. Milt veður og fínasta útivistarveður að sögn veðurfræðings.
Eftir helgi gæti hins vegar veður versnað þar sem líkur eru á að djúp lægð komi til landsins.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Lítilsháttar rigning um landið norðanvert, síðdegisskúrir suðaustanlands, en skýjað með köflum og þurrt suðvestantil. Hiti 7 til 15 stig, svalast fyrir norðan.
Á laugardag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 og léttir til fyrir norðan. Dálítil væta norðvestatil, stöku síðdegisskúrir suðaustantil, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Heldur hlýnandi fyrir norðan, en hiti svipaður syðra.
Á sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 15 stig, svalast við norður- og austurströndina.
Á mánudag og þriðjudag:
Gengur í stífa norðaustanátt með rigningu austantil, en úrkomuminna vestantil og bjart með köflum suðvestantil. Hiti 7 til 15 stig, svalast norðan- og austanlands.