Veðurstofa Íslands varar því við aukinni hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum á fyrrnefndum svæðum eftir því sem líður á helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands.
Talsverð úrkomuákefð
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á vestanverðu landinu fyrir morgundaginn og laugardag en gert er ráð fyrir töluverðri úrkomu.
„Lægð kemur að landinu vestanverðu seint í kvöld, fimmtudaginn 29. ágúst, sem ber með sér talsverða úrkomuákefð á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir talsverðri rigningu eða vætu þegar lægðin og lægðardragið fer yfir,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.
Gera má ráð fyrir samfelldri úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd og Snæfellsnesi fram á laugardag þegar annað úrkomuskot kemur að landinu sunnanverðu af álíka mikilli ákefð.
Úrkomumikið sumar ekki farið fram hjá neinum
„Því verður nær samfelld úrkoma á Vesturlandi og Suðurlandi fram yfir helgi,“ segir í tilkynningunni og er gert ráð fyrir tæplega 140 mm uppsafnaðri úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum en 155 mm á Snæfellsnesi.
„Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að þetta sumar hefur rignt mikið og má segja að það hafi einkennst af vætu í nær öllum landshlutum. Í byrjun júlí var mikið vatnsveður á Vesturlandi, og svipar þessari spá mikið til veðursins sem var þá.
Síðustu daga og vikur hefur verið væta á þeim svæðum sem nefnd hafa verið, sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd og á Snæfellsnesi. Nú er því meiri bleyta til staðar í jarðvegi á þessum svæðum en var í byrjun júlí.“